Garðlist
Garðlist ehf. hefur verið starfandi frá árinu 1989. Fyrirtækið hefur tekið að sér garðhreinsanir og garðslátt í Garðabæ, Kópavogi, Reykjavík og víðar frá því það var stofnað. Fyrirtækið hefur vaxið mikið á þessum tíma og aukið við sig mannskap og verkefnum.
Fyrirtækið er staðsett að Tunguhálsi 7, 110 Reykjavík. Garðlist hefur yfir að ráða góðum flota tækja til að þjónusta viðskiptavini sína sem best og á sem hagkvæmastan hátt, bæði yfir sumar- og vetrartímann.
Á sumrin starfa um 65 manns hjá fyrirtækinu en á veturna eru u.þ.b. 10 fastir starfsmenn og lausráðið fólk sem fengið er sérstaklega til að sjá um ákveðin verkefni. Garðlist hefur þá stefnu að ráða eingöngu til sín samviskusamt starfsfólk sem er tilbúið að gera hlutina eins vel og hægt er.
Viðskiptavinir okkar eiga kröfu á að þau verk sem við erum ráðin til að vinna séu vel af hendi leyst og Garðlist hyggst mæta þeim kröfum og helst rúmlega það. Garðlist er þekkt fyrir að veita góða þjónustu og hefur haldið föstum viðskiptavinum í fjölda ára, jafnframt því að bæta reglulega við.