Sími: 554 19 89

Toppur til hægri

Trjáfellingar

Um trjáfellingar: Garðlist sér einnig um að fjarlægja bæði lítil og stór tré fyrir garðeigendur. Við bjóðum einnig upp á aðstoð við að fjarlægja trjástofna sem sitja eftir þegar búið er að fella tré með stubbatætaranum okkar.

Hvenær er góður tími til að fella tré: Hægt er að fella tré allt árið svo fremi að ekki sé allt á kafi í snjó.

Hvernig er rukkað fyrir trjáfellingar: Vinnan sem fer í það að klippa og fella tré er unnin í tímavinnu og reiknast þannig að tekið er fyrir tímann fyrir manninn. Við klippingar og fellingar á trjám eru alltaf 2 starfsmenn að vinna. Þannig reiknast klukkutíma vinna fyrir tvo starfsmenn sem tveggja tíma vinna. Þegar verið er að klippa eða fella tré má reikna með því að tekið er fyrir þann tíma sem fer fyrir starfsmenn að koma sér í garðinn og þann tíma sem fer í að fara með afklippurnar á haugana. Tekið er gjald fyrir akstur eða notkun á bíl.

Panta þjónustu