Stubbatæting
Um stubbatætingu: Við hjá Garðlist bjóðum upp á aðstoð við að fjarlægja trjástofna sem sitja eftir þegar búið er að fella tré. Fram að þessu hefur þurft að fá gröfu og kranabíl í verkið sem hafa rifið stubbinn upp og oft skilið eftir mikið sár. Stubbatætarinn er vél sem er örlítið stærri en garðsláttuvél og eyðileggur ekkert í kringum sig. Hægt er að rífa stubbinn allt að 30cm niður í jörðina og auðvelt er að tyrfa í gatið.
Hvenær er góður tími til að stubbatæta: Hægt er að tæta stubba allt árið svo fremi að ekki sé allt á kafi í snjó.
Hvernig er rukkað fyrir stubbatætingu: Við stubbatætingu selur Garðlist vinnuna út í tímavinnu, þegar verið er að tæta stubba má reikna með því að tekið er fyrir þann tíma sem tekur starfsmann að koma á staðinn og fyrir að fara með úrgang á hauga. Garðlist tekur ekki sérstakt gjald fyrir förgun á haugum. Tekið er gjald fyrir akstur eða notkun á bíl.