Sími: 554 19 89

Toppur til hægri

Sandur - mold í beð

Við hjá Garðlist bjóðum upp á aðstoð við að setja sand og mold í beð. Mold er gott að setja í beð á nokkra ára fresti til þess að rætur trjáa og plantna séu umlukin nægri mold og séu ekki að gægjast of mikið upp úr beðum. Sand er hægt að setja í beð til þess að minnka viðhald í beðum, í sandi á illgresi erfiðara með að festa rætur og því minnkar vöxtur þess í beðum talsvert.

Hvenær er góður tími til þess að setja sand eða mold í beð: Hægt er að setja mold eða sand í beð allan ársins hring en það fer þó mikið eftir veðurfari. Algengast er að sumarið sé notað til þess að bæta í beðin.

Hvernig er rukkað fyrir sand - mold í beð: Við að setja sand eða mold í beð er Garðlist að vinna í tímavinnu og tekur fyrir tímann á manninn. Þannig reiknast að ef hópur með 3 starfsmönnum kemur í garð til þess að setja mold í beð og vinnan er unnin á 1 tíma, reiknast það sem 3 klukkustundir. Þegar verið er að setja mold eða sand í beð má reikna með því að tekið er fyrir þann tíma sem fer fyrir hópinn að koma sér í garðinn og fyrir þann tíma sem fer í að fara með úrganginn á haugana. Garðlist tekur ekki sérstakt gjald fyrir förgun á haugum. Tekið er gjald fyrir akstur eða notkun á bíl.

Panta þjónustu