System Expo
Síðastliðin ár höfum við verið að setja upp og selja seríur til notkunar utan húss frá System Expo.
Við getum eindregið mælt með þessum seríum, seríurnar eru í senn með fjölbreytt og sveigjanlegt kerfi og hægt er að stækka kerfið og bæta við það nánast endalaust. Innan kerfisins eru fáanlegar einfaldar seríur, grýlukerti, gardínur, net og margt, margt fleira. Allar seríurnar innan System Expo kerfissins eru svo samtengjanlegar.
Í kerfið eru notaðar perur sem henta vel íslensku veðurfari, þær brotna ekki við minnsta högg og þola vind og vatn mjög vel. Gert er ráð fyrir því að perurnar** endist í allt að 20.000 tíma** og eru af hæsta gæðaflokki. Perurnar eru með straumbrú og hefur innbyggt viðnám, þannig að ef peran bilar þá getur straumurinn haldið áfram yfir á næstu peru. Þetta þýðir að eingöngu sú pera sem bilar slokknar og ekki verður aukaálag á þær sem eftir verða.