Sími: 554 19 89

Toppur til hægri

Garðsláttur

img_20071002083958_VbTq_008_39[1] Reglulegur garðsláttur hefur marga kosti, m.a. að mosamyndun minnkar í grasinu og hæð grassins helst jöfn yfir allt sumarið en við það verður grasflöturinn mun fallegri.

Grasflöturinn er sleginn og allar stéttar hreinsaðar ef gras hefur farið á þær. Við vitum að það er mikið ónæði af vélunum og reynum því að vera fljót að klára verkið. Yfirleitt tekur það um 20 til 30 mínútur fyrir tvo menn að slá einkagarð.

Venjulegar grasflatir innihalda nokkrar tegundir af grasi, allar með misjafna eiginleika og þarfir. Ef gras er ekki slegið reglulega munu hávaxnari grastegundir ná yfirhöndinni í flötinni og skyggja á lágvaxnari tegundir. Markmiðið með slættinum er að viðhalda þéttri og heilbrigðri grasflöt.

Tökum að okkur slátt á litlum einkagörðum, einbýlis- og fjölbýlishúsagörðum, sem og stórum túnum og opnum svæðum fyrir bæarfélög og fyrirtæki.

Hversu oft: Venjan er að sláttur eigi sér stað á u.þ.b. tveggja vikna fresti eða um 6-7 skipti yfir sumarið. Oftast er fyrsti grassláttur um miðjan maí mánuð, en það er þó háð tíðarfari hvers sumars.

Hvernig er rukkað fyrir garðslátt: Við garðslátt bjóðum við upp á föst verð en verðtilboð eru gefin eftir að grasflöturinn og garðurinn hefur verið skoðaður að teknu tilliti til stærðar og umfangs verksins. Innifalið í þeim verðum er allur kostnaður við sláttinn; vinnan við sláttinn, úrgangslosun, akstur til og frá staðnum ásamt notkuninni á bílnum. Ellilífeyrisþegar í Garðabæ fá niðurgreidda 3 slætti yfir sumarið, af sveitarfélaginu.

Panta þjónustu