Sumar klipping og beðahreinsun
Síðla sumars er gott að yfirfara beðin. Mikilvægt er að umhirða beða fari fram reglulega yfir sumartímann, með reglulegri umhirðu má koma í veg fyrir mikinn arfa vöxt í beðum. Fjölgunarárhrifin verða margföld þegar arfi er látinn vaxa óáreittur, og því er gott að hreinsa arfa úr beðum reglulega.
Hjá Garðlist má finna mjög færa og góða klippara, auk þess sem klippingahóparnir okkar eru einkar vel búnir hvað vélar og annan útbúnað varðar. Við leggjum mikla áherslu á að hafa reiðubúnar þær vélar sem þarf til að geta klárað garðinn þinn á sem skemmstum tíma, þó alltaf með aðaláherslu á gæðin. Hver hópur er með u.þ.b. 10 vélar meðferðis þegar þeir koma og ættu því ekki að vera í neinum vandræðum með að leysa þau verkefni sem bíða í þínum garði.
Klippa þarf tré minnst tvisvar á ári til að halda þeim í horfinu. Limgerði er nauðsynlegt að klippa til að þau þétti sig. Ef limgerði er orðið gamalt og úr sér vaxið má klippa það alveg niður og leyfa því svo að vaxa á nýjan leik. Einnig getum við fjarlægt bæði lítil og stór tré fyrir garðeigendur.
Við hjá Garðlist bjóðum einnig upp á aðstoð við að fjarlægja trjástofna sem sitja eftir þegar búið er að fella tré. Fram að þessu hefur þurft að fá kranabíl í verkið sem hefur rifið stubbinn upp og oft skilið eftir mikið sár. Stubbatætarinn er vél sem er örlítið stærri en garðsláttuvél og eyðileggur ekkert í kringum sig. Hægt er að rífa stubbinn allt að 30cm niður í jörðina og auðvelt er að tyrfa í gatið. Athugið að hægt er að tæta stubba allt árið svo fremi að ekki sé allt á kafi í snjó.
Við viljum hvetja alla þá sem ætla að láta klippa hjá sér og/eða hreinsa beðin að panta strax Hægt er að panta hér á síðunni og í síma: 554-1989.
Fleiri fréttir
-
10. maí 2012Vorhreinsun
-
04. maí 2012Moltuhaugur í garðinn
-
12. apr 2012Forræktun grænmetis
-
07. mar 2012Nú er tíminn til að klippa tré og runna
-
07. mar 2012Hugað að gróðursetningu vorlauka
-
19. okt 2011Það er bjart framundan
-
12. sep 2011Tvö góð ráð gegn mosa
-
01. sep 2011Haustverkin
-
11. júl 2011Ný heimasíða fer í loftið