Sími: 554 19 89

Toppur til hægri

Stubbatæting

Stubbatæting
26. jan 2011

Stubbatæting (stubbafræsun) hentar mjög vel fyrir þá sem vilja losna við trjástofna úr garðinum eftir að búið er að fjarlægja tré. Trjástofninn er þá tættur niður fyrir jörðina og hægt er að koma því þannig við að ekki sé hægt að sjá að nokkurn tíma hafi verið stubbur í garðinum.

Stubbatætarinn er þannig gerður að honum er á auðveldan hátt hægt að koma inn í nánast hvaða garð sem er. Hægt er að segja að hann sé örlítið stærri en garðsláttuvél. Þannig er hann mjög hentugur og léttilega hægt að koma í veg fyrir að af honum hljótist rask á lóðinni í kring.

Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar um Stubbatætingar.