Nú er tíminn
Hreinsunarteymi Garðlistar samanstanda af starfsmönnum sem eru mjög vel þjálfaðir og hafa mikla reynslu af beðahreinsunum . Við leysum öll verk fljótt og vel af hendi og erum alltaf með ný og góð tæki með okkur. Einnig gætum við þess að skilja vel við umhverfi þeirra garða sem við hreinsum. Sópum og blásum stéttar og gangstíga af mold og öðrum garðaúrgangi. Að verki loknu tökum við með okkur allan garðúrgang.
Hjá Garðlist má finna mjög færa og góða klippara, auk þess sem klippingahóparnir okkar eru einkar vel búnir hvað vélar og annan útbúnað varðar. Við leggjum mikla áherslu á að hafa reiðubúnar þær vélar sem þarf til að geta klárað garðinn þinn á sem skemmstum tíma, þó alltaf með aðaláherslu á gæðin. Hver hópur er með u.þ.b. 10 vélar meðferðis þegar þeir koma og ættu því ekki að vera í neinum vandræðum með að leysa þau verkefni sem bíða í þínum garði.
Við viljum hvetja alla þá sem ætla að láta klippa hjá sér og/eða hreinsa beðin að panta strax Hægt er að panta hér á síðunni og í síma: 554-1989.