Sími: 554 19 89

Toppur til hægri

Hvað er garðyrkja?

Hvað er garðyrkja?
11. maí 2011

Íslensk orðabók skilgreinir garðyrkju sem; garðrækt, ræktun garðávaxta, trjáa, runna og annarra plantna til matar, skrauts eða annarra nytja. Umhirða garða byggist á verkkunnáttu og þekkingu á umhirðu plantna, svo sem vökvun, áburðargjöf og klippingu.

Gróður er undirstaða lífsins á jörðinni og nýtir orku sólargeislanna til að vinna kolefni úr loftinu og breyta ólífrænum í lífræn efnasambönd. Allt jarðlíf byggist á starfsemi gróðursins, við ræktum gras og matjurtir en líka hinn ýmsa skrautgróður til ánægju og augnayndis. Með gróðurvali og mótun gróðurs er meðal annars hægt að byrgja fyrir innsýn og draga úr hávaða, hávaxin gróður getur ákvarðað samspil skugga og birtu í garði og haft þannig áhrif á vöxt nærliggjandi plantna. Trjáklippingar geta meðal annars miðað að því að gefa hverri lóð eða heilu hverfunum persónulegt yfirbragð og heildar svip.

Með því að klippa árlega á markvissan og ákveðinn hátt næst betri ræktunar árangur. Rétt trjáklipping getur gefið gróðri meira notagildi og þá er hægt að njóta hans betur. Aðal klippingartíminn er að vetri meðan gróðurinn er í sem mestri hvíld enda er þá betur hægt að átta sig á vaxtarlaginu en á gróðri sem er í fullum skrúða.