Haustverkin
Nú þegar sumri hallar og spretta trjágróðurs er næstum engin er góður tími til þess að klippa allflestar trjátegundir í garðinum. Ef garðurinn er klipptur að hausti til má njóta þess allan veturinn og langt fram á vor að hafa garðinn vel klipptan og tilbúin fyrir sumarið.
Nú þegar laufin fara að falla er gott að klippa trjágróður því greinabygging gróðursins er þá best sýnileg, einnig eru haustin góður tími til þess að móta trjágróður. Rétt klipping á trjágróðri dregur úr líkum á skaða af völdum sára og því er mikilvægt að rétt sé staðið að verkinu.
Hjá Garðlist er að finna mjög færa og góða klippara, auk þess sem klippingahóparnir okkar eru einkar vel búnir hvað vélar og annan útbúnað varðar. Einnig erum við með stóra bíla og sturtukerrur til þess að fjarlægja afklippur og niðursöguð tré að verki loknu, góður búnaður flýtir mikið fyrir verkinu og gerir okkur kleift að takmarka tímann í görðum eins og mögulegt er og lækka þannig kostnað viðskiptavinarins.
Við viljum því hvetja alla þá sem vilja láta klippa garðinn hjá sér fyrir veturinn að panta strax, hægt er að panta hér á síðunni og í síma: 554-1989.
Fleiri fréttir
-
10. maí 2012Vorhreinsun
-
04. maí 2012Moltuhaugur í garðinn
-
12. apr 2012Forræktun grænmetis
-
07. mar 2012Nú er tíminn til að klippa tré og runna
-
07. mar 2012Hugað að gróðursetningu vorlauka
-
19. okt 2011Það er bjart framundan
-
12. sep 2011Tvö góð ráð gegn mosa
-
22. júl 2011Sumar klipping og beðahreinsun
-
11. júl 2011Ný heimasíða fer í loftið